what are you waiting for?

wonder-girl

25.10.2007 13:11:26 / evad

Hætt

hætt með þessa síðu... ég er komin með myspace. þangað eru komnar margar skemtilegar myndir, en ég bíst ekki við að blogga mikið þar (myndir seigja meira en mörg orð :lol:

slóðin er 

http://www.myspace.com/eva_d_e

kv Eva Dögg 


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.05.2007 12:39:13 / evad

Langt síðan síðast

Hæhæ... ætla bara að láta vita að ég er á lífi:haha:!!!
Það heftur verið alveg brjálað að gera hjá mér og þess vegna tók ég mér smá pásu frá blogginu...
En gott fólk ég er bara orðin STÚDENT;)... ó já... ég hafði góða ástæðu fyrir því að vera svona ódugleg að blogga!!! Laugardaginn 19 maí útskrifaðist ég semsagt sem stúdent af náttúrufræðibraut:haha:... hinsvegar hélt ég ekki veislu þar sem ég hafði bara hreinlega ekki tíma til að undirbúa neitt þar sem ég hafði eitt vikunni á undan í að hjálpa mömmu í sauðburðinum!!! Hinsvegar kíkti ég í nokkrar heimsóknir ásamt pabba og Orra. Og svo fórum við út að borða á Fjörukránni ásamt Eybjörgu:D. Um kvöldið skelltum við Eva Rún okkur aðeins útá lífið8)... mér fannst sko að ég ætti það fyllilega skilið þar sem ég hef ekki slett almennilega úr klaufunum sins good knows when8|!!! Skemmti mér alveg konunglega.
Svo fór ég bara aftur í sveitina... en ég ætla ekki að fara í gegnum sumarið án þess að fagna almennilega, enda hef ég góða ástæðu til!!! Í sumar ætla ég að fá lánað veiðihúsið heima og halda einhvern gleðskap8)... þá ætla ég að fagna því að ég verð orðin 21árs:haha:, Stúdent:haha: og við orri verðum búin að vera saman í næstum 5 ár!!!! ÖSS... Það verður gaman!
En víkjum nú aðeins að sauðburðinum... ég fór semsagt til mömmu strax eftir próf til að hjálpa til... kom þarna 10 maí það gekk svosem allt mjög vel. Svo kom ég aftur vestur eftir útskrift og ætlaði þá að vera bara hjá pabba... en þá vantaði mömmu ennþá svo mikla hjálp að ég þurfti að skipta mér... á daginn hjá pabba, á næturnar hjá mömmu... svo svaf ég á kvöldin og morgnana...reyndar þurfti pabbi ekki svo mikla hjálp... aðal ástæðan var að ég þurfti að undirbúa komu merkilegs gests sem heitir Grímur;)... hann er graðhestur sem ætlar að sinna merum hjá okkur í sumar... ég þurfti að dytta að girðingum og færa hestana og undirbúa allt svo þetta verði allt saman í lagi...
Grímur er undan Glym frá innri-Skeljabrekku og meri sem mig minnir að heiti Yrsa. Fallegur 2ja vetra foli með flottar hreyfingar og góða byggingu:haha:.
En svo er verið að taka upp einhverja mynd þarna fyrir verstan... Heiðin held ég að hún heiti... um mann sem er að flytja kjörkassa á flug og lendir í ýmsum hremmingum, meðal annars í því að keyra á lamb. Mamma og Leifur lánuðu þeim 3 rollur með stálpuðum lömbum og þau komu til baka öll útötuð í gerfi blóði... fyrir þá sem þekkja til þarna þá var atriðið tekið upp sunnanmegin í ódrjúgshálsinum fyrir ofan vegriðið þar sem brekkan framaf er hæst og bröttust8|.
En ég hef ekki mikið meira að segja í bili:P... ég verið dugleg að blogga í sumar og framvegis8).




» 1 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 11:16:04 / evad

BLEEEZUÐ

Hellú… sælt veri allt fólkið sem skoðar þessa vesælu heimasíðu mína ;)Það er nú ekki mikið að frétta af mér. Ég er bara búin að vera í skólanum og svo auðvitað að sinna mínu uppáhalds áhugamáli þessa dagana… Hestunum mínum8). En þeir eru á góðri leið með að hjálpa mér að grennast pínu:haha:… Ekki slæmt áhuga mál það…En ég er eins og vanalega… löt að djamma:S… ég gerði þó afar heiðarlega tilraun á síðustu helgi þar sem okkur var sagt að það yrði sitthvað um að vera á Klúbbinum Gullinbrú... tilboðið var bjór á 300 kjéll og 20 ára inn… og svo DJ  á kantinum… þetta hljómaði freistandi en þegar við komum varð okkur ljóst að stór hluti gesta voru kvenkyns og stærstur hluti þeirra var undir 16 ára:whut:… flestar voru þær á góðri leið með að verða ofurölvi:$. Ég get ekki sagt að þessi stemning hafi heillað mig:evil:… ég hefði alveg getað farið þarna til að dansa pínu en að fara þarna til að setjast niður og fá sér öllara með kallinum… ekki alveg að virka:S.En eins og ég segi þá er ég alveg að verða komin á kaf í hestana aftur:haha:… alveg að missa mig. Ég fór á sunnudaginn uppí svínadal í hvalfjarðar hrepp. Þar erum við með tvo hesta í tamningu, þá Röðul (pabba hestur) og Blika (mömmu hestur). Við fórum að skoða hvernig gengi hjá tamningarmanninum með þessa brjálæðinga:). Það var allavega alveg að ganga vel með Röðul kallin,:P nema að hann er ekki nógu viljugur:|… hvort það skortir bara þol vitum við ekki. En hann þarf bara helst að komast í reiðtúra með öðrum hestum og athuga hvort hann taki ekki við sér. Ég prófaði hann sjálf. Hann var dálítið óöruggur með sig til að byrja með, skyldi ekkert í því að einhver nýr væri að setjast á bak á sér. En þegar ég kom honum á dálítið skrið þá var hann bara mjúkur töltari en átti aðeins erfiðara með að brokka. Blika fengum við því miður ekki að sjá með mann á baki. En hann leit vel út og Finni virtist líka vel við hann þrátt fyrir frekjuna. Hann átti það samt víst til að reyna að sturta honum:$. Við förum og sækjum röðul eftir hálfan mánuð og förum þá með Sól, hryssu sem pabbi á og við erum að baksa við að temja. Reyndar hefur okkur gengið alveg ágætlega með hana,:) nema hún hefur ekki verið mikið fyrir að feta fyrir okkur. Í gær tókum við hana í gegn. Lögðum á hanna og svo var henni riðið í fyrsta skipti án þess að haldið væri í hana. Reyndar þá var það innanhús í lítilli stíu þar sem hún var látin læra að beygja . það gekk framar vonum og við byndum vonir við að við getum tekið hana á miðvikudaginn og lónserað hana með mann á baki:haha:. En nóg um hesta… við fengum að gera þessa líka svakalega skemmtilegu tilraun um daginn í Eðlisfræði:haha:. Það var farið og sótt fljótandi nitur (köfnunarefni, ca -175°C) og þurrís (-75°C). Því næst náðum við okkur í rjóma, súkkulaði, mjólk, sykur og vanillusykur. þessu var því næst hrært saman og köfnunarefninu hrært saman við þetta allt… og eftir ca 15 mínútur vorum við komin með þennan líka fína súkkulaðivanilluís:P… nammi.. nammi. Þetta var gg gaman og ísinn var alveg frábært. Þá var Þurrísinn settur í ílát með volgu vatni þannig að stofan fylltist af svona gg töff reik og svo tókum við nitrið og settum í skál og lékum okkur að því að frysta hluti eins og epli, fernur, blöð, plöntur og fl og fl:klikk:. Þetta var allavega skemmtilegasta og bragðbesta tilraun sem ég hef á .ævi minni gert;).

En ég man nú ekki eftir neinu fleiru skemmtilegu til að skrifa í þetta blessaða blogg mitt… nema að árshátíðin hjá Subway er á næstu helgi..OMG…þetta verður alveg Crazy gaman:haha:.  Og það er komin dagsetning á skírinina hjá litlu systur... 31 mars :D

En þið látið í ykkur heyra… KOMMENTA…GESTÓ… SKOÐANARKÖNNUN…. Eins og þið viljið ;)BÆBÆ8)

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.02.2007 11:55:03 / evad

Sveitin um helgina...

Komið þið blessuð og sæl:)… ekki mikið um að vera hjá mér eins og vanalega. En ég fór samt vestur um helgina, nánar tiltekið í Djúpadal þar sem ég hitti alveg svakalega mikið af fólki8|… Ég var alveg svakalega dugleg og verslaði fullt af drasli fyrir hana mömmu, bæði í matinn og svo á hestana og fyrir litlu systur (ónefnd Leifsdóttir). En við tókum hana Valdísi með okkur vestur þar sem hún er orðin alger sveita stelpa.:lol: Við vorum komin í Djúpadal um svona 11 leitið og þá var bara farið fljótlega að sofa. Ég vaknaði snemma á laugardeginum og fékk mér að borða og svona afi var líka í heimsókn með Jakob og Jóel vin hans. Þannig að yngri kynslóðin ákvað að skella sér í sund:haha:. Svo komu alveg haugur af gestum, Andrés og fjölskyldan hans. Þau gáfu litlu svakalega fína rafmagnsdrifna rólu:P. Það vildi hinsvegar svo óheppilega til að það var hvergi til nægilega stór batterí til að setja í róluna. En sú litla var hinsvegar ekkert hrifin að því að láta róla sér. Þannig að þetta er allt í lagi til að byrja með;). Svo á sunnudaginn skruppum við í Gufudal og kíktum á hestana, kindurnar og hundana:D… þar var allt bara í góðu lagi, fyrir utan að Diddi var ekki enn þá komin heim og þau í fremrigufudal voru enn að gefa fyrir okkur. Svo kom Sjöfn prestur í heimsókn með dóttur sína. Við fengum alveg svakalega góðan kjúkling í kvöldmat og svo var haldið á stað í Reykjavík:S.En núna er ég bara í skólanum í eyðu og hef voðalega lítið að gera:|. Hinsvegar þá var ég að fá póst um að það væri bráðum hestamannamót fyrir framahaldskólanema bráðlega8)… kannski maður skelli sér á það:lol:. 

» 5 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 16:14:31 / evad

Gleðilegan Öskudag!!!

Hæ, hæ gott fólk:lol:, það er nú ekki mikið um að vera hjá mér…. Ég er eins og er í eyðu í skólanum og veit varla hvað ég á af mér að gera. Þannig að ég ákvað að skjóta inn einu bloggi svona til tilbreytingar. Helgin fór í veikindi og vinnu. Ég var alveg fárveik á föstudaginn og svo slöpp bæði laugardag og sunnudag. Orri veiktist líka á sunnudaginn þannig að það var lítið um stjan við mig. Hann keipti samt fallegar rósir;) og ég bakaði skúffuköku sem við borðuðum saman með bestu list. Ég var líka ekkert að spá í því þar sem hann bauð mér út að borða í síðustu viku... krúttið mitt:haha:...  Á mánudag fór ég niðrí hesthús og ætlaði að fara aðeins á bak honum Sleipni, en þá var bara eingin sem var búin að vinna og gat komið með mér:$. Þannig að ég gafst upp á því. Ég lét hrossin bara út og mokaði húsið og gaf. Hestarnir voru samt að fara slatta mikið úr hárum þannig að ég kembdi þá útí gerði. Það var gjörsamlega skafrenningur af hárum þarna úti8|!!! Sól var svo abbó þegar ég ætlaði að reina að kemba unga folanum sem er í tamningu í sama húsi og við að hún réðst á hann, beit hann og sló:o… hún gjörsamlega átti mig:)… ég mátti helst ekki koma nálægt hinum hestunum:S.Svo var ég bara að vinna í gær:|… ekki mikið um að vera svona seint í mánuðinum.Svo er auðvitað öskudagur í dag:haha:… fullt af litlum krökkum í búningum að slá köttinn úr tunnunni og borða nammi núna:P. Ég var samt ekki svo duglega að nenna að fara í búning… ég ætla samt að vera svo dugleg að draga Elvar og Pabba á hestbak í kvöld… þeir skulu!:klikk:!!! Annars munu þér hljóta verra af!!!! Eða þannig… þeir þurfa allavega fjári góða afsökun:S!!!Svo er kannski bara málið að skella sér á þorrablót í hólminum um helgina:haha:… maður veit aldrei. En ég bara hef ekkert meira að segja… látið heyra í ykkur, KOMMENTA, GESTÓ OG SKOÐANAKÖNNUN!!!!8)

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 10:24:54 / evad

Gleðilegan Valentínusardag í gær...

Nammi namm:haha:.... ég og Orri fórum út að borða í gærkvöld... ég held ég hafi bara sjaldan smakkað svona góðan mat!!!!:P Við fórum á stað sem heitir Domo.... þessi staður er með svolítið Kínversku yfirbragði... þeir eru með fullt af shusi réttum og fisk réttum og svo auðvitað líka steikur og ýmislegt fleira. Allavega þá komum við þarna um 8 leitið og fengum okkur sæti. Við byrjuðum á að fá okkur fordrykk, við fengum mohjido;) og svo pöntuðum við í forrétt engiferristaða risahörpuskel og í aðalrétt fékk ég mér nautasteik en Orri fékk sér andabringur. Áður en við fengum þessa rétti á borðið fengum við svona list auka, þetta voru tveir shushi bitar á disk. Ég var bara mjög hissa á hversu vel þetta bragðaðist;). Ég meina... fiskur hefur aldrei verið mitt uppáhald, hvað þá ef hann er hrár8|!! En allavega þá bragðaðist forrétturinn alveg frábærlega:) og aðalrétturinn ennþá betur:D. Með aðalréttinum fengum við alveg rosalega gott rauðvín. Það var rosalega bragðmikið en ekki svona sem þurrkar á manni munninn. Í eftirrétt fékk ég mér ís og ávexti. Ég fékk 3 tegundir af is, jarðaberja, hvítt súkkulaði og hvítt súkkulaði með hnetum. Orri fékk hinsvegar heita súkkulaðiköku og ís.;)
Mér fannst þetta kvöld heppnast alveg svakalega vel8)....
En ég ætla að fara að drífa mig í skólann þar sem ég er að fara í próf:$...
bæbæ


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 23:43:15 / evad

ágætis dagar

Halló gott fólk:)
Jæja þá er bara komin þriðjudagur og ég hef ýmislegt skemmtilegt að segja:haha:. Tildæmis þá fór ég í smá ród tripp á föstudeginum fyrir helgi að kíkja á búðina sem hún Kittý var að opna fyrir stuttu... svakalega flott hjá henni og flott föt á gjafa príís:haha:... við spjölluðum alveg heilmikið saman.
Síðan fór ég aftur til Reykjavíkur. Ég og orri vorum búin að ákveða að fara í Stykkishólm en þar sem orri var ekki búin að fá nýu gleraugun sín:$ þá treysti hann sér ekki til að keyra alla leið, annars hefði ég geta fengið far seina.
Þegar við komum vestur fórum við til Önnu Siggu og borðuðum svona eggja pie með grænmeti. Og auðvitað varð maður aðeins að leika við hana Lipurtá sína, hún var svo glöð að sjá okkur:lol:.
En við skelltum okkur til Villa og Kittýar (sem kom líka í hólminn frá Hveragerði) þar sem við fengum okkur öllara og svoleiðis fínheit og spjölluðum og hlógum langt fram á nótt;)... Fuglinn hans Villa er alveg kostulegur, hún Pollý kann sko að tjá sig... hefur mjög gaman að því að flauta og dansa, sérstaklega ef einhver er að spila undir á gítarinn:haha:... svo var þarna líka alveg svakalega sætur tveggja og hálfs mánaðar gamall border colli hvolpur sem átti að lóga en Kittý bjargaði frá illum örlögum... hún var að leita að heimili fyrir hann en er nú búinn að ákveða að eiga hann sjálf þar sem hún Tíra (eins og hvolpurinn er kallaðu) er algert æði;). Tíru og Dimmu hans Villa kom alveg ótrúlega vel saman... hálfpartin eins og mæðgur.
Við sváfum út á laugardeginum, töldum okkur eiga það fullkomlega skilið þar sem við vorum búin að vera mjög dugleg8). Við fengum góðan morgunverð hjá Ara og svo fór orri að hjálpa mömmu sinni við að setja upp ljós og ýmislegt fleira. Svo bauð hún okkur upp á kaffi og kökur... nammi nammi:D...
Um kvöldið skelltum við okkur yfir til Kittýar og Villa þar sem var boðið uppá nautasteik með piparsósu, fetasalati, gratíni og síðast en ekki síst rauðvíni;)... þetta var alveg svakalega gott. Maður var alveg pakk á eftir... þurfti að eins að hneppa frá eftir átökin. Svo var spilað, hlegið og djúsað frammá nótt.:haha:
Við fórum snemma af stað á sunnudeginum þar sem Orri þurfti að horfa á körfubolta leik í bænum. Rétt náðum að kveðja og koma okkur á stað.
Á mánudeginum var ég dugleg og fór niðrí hesthús. Ég lónseraði Sól aðeins... en það var erfitt því hún var dulítið upptekin af hestunum sem voru fyrir utan gerðið frekar en mér og svipunni:$. Svo kom pabbi við og sagði mér að það hefði veið að fréttast af fullt af ættingjum sem byggju í Ameríku8|....ég kann nú ekki alla söguna en þetta var bróðir langömmu á skálanesi sem fór í seini heimstyrjöldina og fréttist síðan ekkert af.
En dagurinn í dag var ekki heldur sem verstur. Orri tilkynti mér að hann ætlaði að bjóða mér út að borða annað kvöld:haha: og svo fór ég niðrí vinnu og viti menn STELPAN ER BARA STARFSMAÐUR MÁNAÐARINNS HJÁ SUBWAY... að launum fékk ég Nokia 6085 síma8).
En nóg um mig... hvað finnst ykkur...
Heri í ykkur síðar:)


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 22:07:40 / evad

jæja

Hæ, hæ. Jæja.... langt síðan síðast En já... það er nú ekki mikið búið að vera í gangi hjá mér.... nema ég fékk frekar slæma blöðrubólgu sem er ekki alveg í frásögn færandi.... Jú og svo eru hestarnir mínir að koma í bæinn... ohhhh... ég er búin sakna þerra svo mikið... ég ætla að vera alveg svakalega dugleg að hreifa þá og sjálfan mig um leið... alveg komin með planið á hreint... þetta verður bara gaman. Jamm... En ég fór heim á síðustu helgi og skoðaði litlu systur... hún er algert krútt.... með bollukinnar.... og svo er hún alveg rosalega gráðug... það er bara MAMMA MATUR!!!! Non stop..... enda þarf litla músin að stækka.. Jamm og svo fórum við líka heim í Gufudal að ná í hestanna og búa þá undir flutning til Reykjavíkur.... þeir voru alveg vitlausir þegar við rákum þá heim... vildu als, als, als ekki fara þangað sem við vildum að þeir færu.... fyrst ákváðu þeir að fara inn á túnin fyrir utan veg.... og svo fóru þeir fram eftir og eftir að við komum þeim inná þá fóru þeir að kirkjunni og svo útá tröð og svo ákváðu þeir að fara inn á blettinn þar sem þeir áttu að vera. Reyndar var það hann afi sem bjargaði okkur... við hefðum aldrei náð þessu nema vegna þess að hann kom í heimsókn nákvæmlega þegar hestarnir voru að renna heim....svo fórum við bara inn og fengum okkur kaffi og bakkelsi og slöppuðum aðeins af eftir átök dagsins. Eftir það fór ég út og ætlaði að reka hestana inn.... pappi var farin á undan mér að undirbúa hesthúsið til að taka þá inn... og viti menn... hestarnir neituðu að fara inn... hlupu eins og vitleysingar útum allan blett... rifu meira að segja niður girðingu og voru alveg trilltir... við komum þeim lognsins inn... þá var ekkert mál að klippa á þeim hófana, kemba þá og gefa þeim að éta...þau voru flest með fína hófa, Sól var samt með langa hófa og eins og búast mátti við þá voru framhófarnir á Drottningu í algeru messi... en það er að vaxa niður betra lag þannig að það lítur út fyrir að hún verið tilbúin í folaldseign í sumar.. Fyrir utan þetta þá er ég að farast úr djamm skorti.... mig er eiginlega bara farið að langa rosalega í almennilegt djamm.... ÉG HEF EKKI DRUKKIÐ DROPA AF ÁFENGI, EKKI DANSAÐ, EKKI FARIÐ Á NEINSKONAR SKEMMTUN SÍÐAN Á ÁRAMÓTUM!!!! Ég er mikið að spá í að skella mér einkvað um helgina, þrátt fyrir að þetta sé vinnu helgin mín og plús að þetta er mánaðarmóta helgi.... skelli mér sennilega einkvað á laugardaginn... í tilefni þess að Jóhanna á 22 ára afmæli...þó hún sé nú stödd í Danaveldi þá er nú eingin ástæða til þess að halda ekki aðeins uppá þetta... En ég kveð að sinni.... verið duglega að kjósa, kommenta og skrifa í gestó .... Kær kveðja úr breiðholtinu....

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 15:34:53 / evad

hello

Hæhæ allir saman:lol:… ég ávað að vera alveg extra dugleg og blogga 2 daga í röð (sem er óvenjulegt því það gerist ekki mikið hjá mér:$). Til að byrja með þá er ég með frekar stórt brunasár á hægri kinninni:cry:…. Ég var neblega að vinna í gær…. Og kranavatnið þarna er svo heitt8|!!! Ég var að vaska upp og skellti bacon boxinu eikvað harkalega undir bununa svo það skvettist framan í mig:|… og ég er með FOKKING BRUNASÁR EFTIR ÞAÐ:frown:!!!! Ef ég fæ ör eftir þetta helvíti þá fer ég í mál:evil:!!!!

Ég er en þá í skólanum og verð hérna til kl 6… og heilabúið mitt er þegar orðið yfir fullt:$… af eikverju sem kallast lífræn efnafræði.. sem er alveg ágætt fag en bara doldið mikið mikið flókið…. Fyrir utan að bókin sem við notum er öll á ensku þá er þetta eins að reyna að bíta í eyrað á sjálfum sér… ég á samt eftir að fara í meiri efnafræði í dag8|..

En ég komst að því að þrátt fyrir að eðlisfræði sé einstaklega flókið og leiðinlegt fag þá getur maður notað hana til að skemmta sjálfum sér:lol:… maður þarf bara :

  • Örbylgjuofn
  • Sápu
  • Ljósaperu
  • Geisladisk
  • Ímislegt fleira sem getur sprungið eða líst inní örbylgju ofni.

Þessir hlutir gera ímislegt cool þegar þeir eru settir í örbylgju ofn eins og að lýsa, springa og freyða8). Þetta eru eðlisfræði tilraunir sem geta skemmt öllum… en vinsamlegast haldið fjarlægð á milli ykkar og örbylgjuofnsins…málið er að við vorum með fyrirlestra í gær þar sem var meðal annars verð að fjalla um örbylgju ofna… í framhaldi af  því þá horfðum við á þætti sem heita braniacs, þar er verið að gera alskonar fyndnar tilraunir, eins og að setja alkonar drasl inní örbylgjuofn… þeir settu tildæmis dínamít8|… sem var auðvitað  geggjað fyndið:haha:…eðlisfræði kennarinn sagði að við gætum reynt að gera svona tilraunir. (sennilega samt ekki  með dínamíti)

En verið nú dugleg að kvitta

Kv Eva:P

 



 


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 12:44:41 / evad

flytja, veik og ýmislegt fleira...

Hæhæ… allir saman:D… það er ýmislegt búið að vera um að vera hjá mér. Til að byrja með þá þurfti ég að finna mér nýjan samastað þar sem það var verið að selja íbúðina sem  við leigðum síðast:S. Jammm… en við fundum mjög fína íbúð í breiðholtinu:), nánar tiltekið í smyrilshólunum og þangað erum við búin að vera að flytja núna síðustu daga. Það eina slæma sem ég sé við þessa íbúð… öllu heldur blokkina sjálfa er að þar býr fólk sam þolir ekki ketti:cry: og ég get ekki haft hana litlu  sætu kisu hjá mér:cry:…helv… dýrahatar:evil:… ég er ekki sátt.. þá urðum við auðvitað að finna henni kisu okkar annan samastað og það vildi svo vel til að mamma hans Orra sættist á að taka hana að sér á meðan við aðstæður leifa okkur ekki að hafa kisu okkar:). Allavega þá hafa flutningarnir gengið alveg ágætlega, við erum næstum komin með allt draslið okkar upp í breiðholt, en Elín ætlar að passa kisu fram að helgi þá fer hún í hólminn:).

Helgin síðasta var algert kjaftæði:(… ekki það að ég hafi eikvað verið að djamma… neinei ég var voða þæg. Hinsvegar þá átti ég að vera með síman um helgina (vinnusíman)… það er nú meiri óheilla gripurinn:evil:… þetta gekk svo sem allt vel á laugardaginn, nema ég var svolítið slöpp en var samt þarna til 3 og fór svo heim að flytja … en þá var hringt úr vinnuni og ein stelpan sem var að hætta neitaði að taka kvöldvaktina (sem hún átti réttilega að taka því þetta voru föstu vaktirar hennar) og þegar ég fór að hringja út um allt þá voru allir eikversaðar á skíðum, að fara í partý/afmæli eða hreinlega svöruðu ekki:$. Þannig að ég varð að gjöra svo vel að fara niðrí spöng aftur og taka þessa bansettur kvöldvakt:evil:. ÖSSS…  við vorum samt ekkert voðalega lengi að þessu þannig að ég var komin heim aftur um 10 leitið. Svo daginn eftir þá var ég enn þá slöpp og svo í ofanálag þá fékk ég þessu líka svakalegu magaverki um 12 leitið:(. Sem betur fer var ekki mikið að gera þannig að ég var farin kl 13 heim og uppí rúm að vera lasin:whut:

En allavega þá verðið þið lesendur góðir að taka ykkur á í að skrifa í gestó, kommenta og taka þátt í skoðunarkönnuninni minni:whut:… ég mun taka mark á ykkur :P

Bæbæ í bili…8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.01.2007 22:22:30 / evad

systurnar

Hæhæ Til að byrja með ætla ég að óska svanhildi minni til hamingju með afmælið. Hún er 16 ára í dag :) Og nema hvað ég kíkti á minnstu systurina í gær og hún er algert krútt. Hún er greinilega með hökuna og munninn hans Leifs en ég held að Mamma eigi augun og hún er líka með ættarsveipinn sem við hinar erum allar með ;) En þið látið í ykkur heyra í gestó og komenturm ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.01.2007 11:43:31 / evad

Nýr fjölskyldu meðlimur

jæja þá er mamma logsins búin að unga út örverpinu. það var lítil systir sem fæddist kl 2:29 í nótt hún var 14 merkur og 52 cm :) öllum heilsas vel. ég blogga betur um þetta þegar ég kem úr skoðunarferðinni :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.01.2007 23:55:00 / evad

stundartaflan

jamm... ég sótti stundartöfluna mína á fimmtudaginn síðast.... en var ekki alveg ánægð með að fá tíu einingar svo ég fór í madure töflubreytingar... ég var að fá töfluna til baka í dag og hún lítur bara ágætlega út... ég er núna með 12 bóklegar einingar í stað 9 sem gerir það að verkum að ég get útskrifast í með pompi og prakt í vot.... jeijjjjj... klappið fyrir mér.... :) en þessi helgi er ekki alveg að gera sig.... ég er nebleg voðalega kvefuð.... með endalaust nefrensli og hita, en ég lét mig nú samt hafa það að vinna og audda vorum við að fara út að borða þessa helgi útaf því að við unnum þjónustukönnunina í desembar....;) við héldum því vaskar á grillhúsið á triggvagötu... en þá kom babb í bátin.... við pöntuðum borð fyrir 15 en sæsta borðið á staðnum var fyrir 10 svo eikverjir þurftu að sitja við annað borð :( ekki gaman.... það á notla ekki að vera hægt að bóka borð fyrir 15 sem by the way taka það framm að vilja sitja saman á stað sem hefur ekki stærri borð en fyrir 10 það er notla asnalegt. en góðaskapið var ekki langt undan... ég fékk mér kjúkklingabringur með osti bræddum yfir sykurhúðuðum sveppum, frönskum, salati og bakaðri kartöflu. :) þetta var alveg fínasta máltíð og ég mæli með að fara þarna... ef þú ert með lítin hóp þar að segja en nú er ég bara heima að láta mér leiðast bæbæ:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.01.2007 20:48:56 / evad

jól og áramót

Jæja... nú er maður komin til baka úr sveitinni... ég var nú bara róleg um jólin, fór fyrst til mömmu og var þar svolítið og hjálpaði til... svo fór ég heim í Gufudalinn til pabba og undirbjó jólin þar með því að baka alveg heilan helling af smákökum og góðgæti. Ég bakaði meir að segja marensin í dæm tertuna!!! Aðfangadagur var bara rólegur ég og Elín skelltum okkur í sund til mömmu og fórum svo aftur heim og settum undirbúninginn á fullt... pabbi og svanhildur höfðu á meðan farið í húsin og Afi var nýkomin frá því að kíkja á hestanna. Svo belgdum við okkur út af léttreyktum svínahrygg, rauðvínssósu (sem engin jól eru án), brúnuðum kartöflum, kartöflugratíni, salati og allskonar góðgæti. Svo ákváðum við að fara og kveikja á friðarljósum útí kirkjugarði... það var afar skrautlegt, vegna þess að það var svo hvasst. Svo réðumst við á pakkana. Svanhildur var eins og krakki í dótabúð og réðst á alla pakkana með þvílíkum látum... gat hreinlega ekki beðið. Ég var miklu rólegri yfir þessu öllu og opnaði pakkana með rólega. Ég fékk 2 bækur (sér grefur gröf og öldungurinn), hárblásara sem hægt er að skipta um stúta á og nota sem krullu bursta og sléttujárn, úlpu, snoopy body lotion og sturtusápu, gloss, lítið sætt dagatal og margt fleira. Svo borðuðum við heimatilbúin ís og ávaxtasalat og ég bjó til geggjaða toblerone íssósu með góðgætinu. Svo slöppuðum við bara af... glugguðum í bók og fengum okkur smákökur og konfekt. Svo horfðum við á Step upp sem Svanhildur fékk í jólagjöf, mjög góð mynd sem pabbi fílaði alveg í tætlur. Á jóladag vaknaði ég snemma miðað við aðra í húsinu. Svo var það þessi vanalegi jóladags hádegisverður með köldu hangikjöti, hvítri sósu og afgöngum frá deginum áður. Svo hjálpaði ég pabba að undir búa kirkjuna fyrir messu sem byrjaði kl 5. það var vel mætt og messan tókst vel. Eftir messu fórum við í Djúpadal til mömmu og fengum rjúpu og hamborgara hrygg og fleira góðgæti. Við fengum fleiri gjafir frá þeim, við fengum allar 7500kr inneign í kringluna og svo fengum við kertastjaka úr pökkum sem við áttu þar fyrir. Svo höfðum við bara gaman. Svo fórum við aftur heim. 28 des fórum við vestur að heimsækja Hvamm. Við kíktum á kusurnar og hrútinn Ketil gufu sem við gáfum þeim. Svo borðuðum við góðan mat og spiluðum og spjölluðum. Ég ákvað að taka Baldur til Stykkishólms og eyða áramótunum þar með Orra. Þess vegna gisti ég í Hvammi þar til daginn eftir. Svo hjálpaði ég til við jólabalið sem var haldið í birkimel. Kl 5 lagði Baldur af stað og ég þurfti ekki að láta mér leiðast þar því Villi var að vinna sem kokkur. Maður naut auðvitað góðs af því... hann bjó til handa mér risa stóran hamborgara með eggi og miklu beikoni... nammi namm Við vorum bara róleg á föstudeginum en við fórum á ball með stuðbandinu á laugardeginum sem var mjög gaman. Á Sunnudeginum, sjálfum gamlársdegi var fyrst forréttur hjá Önnu Siggu. Lúða og humar sem höfðu verið lögð í bleyti með allskyns grænmeti og svo safa úr lime. Sýran í liminu hleypir eggjahvítunni í fisknum svo það þarf ekki að elda hann meir... þetta var bara ótrúlega gott... svona létt og ferskt. Með þessu var brauð og sýrður rjómi með kryddi. Svo fórum við heim til Ara þar sem aðalrétturinn átti að vera. Ég og Jón Torfi fórum í skræl keppni, og eins og við mátti búast burstaði ég hann. Aðalrétturinn var puru steik með ímsu góðgæti. Eftir matinn horfðum við á frétta yfirlitið og svo á skaupið sem mér fannst bara alveg þokkalegt. Svo skutum við upp flugeldunum og nutum þeirra. Ég og orri fórum svo í partý til Snæbjartar og Dóra. Mjög gaman. Svo á fimm fiska og svo í partý til Jón Becks. Þetta var gífurlegt stuð og við vorum ekki komin heim fyrr en kl hálf sjö um morguninn og sváfum svo til kl eitt. Svo fengum við okkur að borða og fórum svo aftur í bæinn... Núna er ég að farast úr stressi vegna þess að ég var að frétta að við verðum að vera farin útúr íbúðinni fyrir 1 mars og ég er að deyja úr stressi vegna þess að nú hefst þetta leiðinlega ferli... leita að íbúð.... pakka..... flytja og finna aðra íbúð En ég vil ekki kvarta meir.... ég verð dugleg að blogga og ef þið verið dugleg að skrifa í gestabókina.

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 20:15:04 / evad

...

Til að byrja með vil ég votta vinum og vandamönnum Valla samúð mína... þín verður saknað... Ég hef nú ekki mikið að segja nema ég er alveg strand með jólagjafirnar, veit ekkert hvað ég á að gefa fólki og prófin eru að kála mér úr stressi.... helgin var ekkert til að hrópa húrra fyrir, var bara að vinna og fór svo heim að læra... nema á laugardagskvöldið fór ég á Mýrina, þetta er bara mjög fín mynd, með betri íslensku myndunum sem framleiddar hafa verið í seinni tíð.... ekki of há fleyg og “lystræn” eins og oft vill verða með íslenskar kvikmyndir. En ég hef nú ekki neitt meira að segja þannig að ég bið að helsa...

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4